Viktor Gísli Hallgrímsson og samherjar í GOG hrepptu í dag bronsverðlaun í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. GOG vann Holstebro með fjögurra marka mun, 33:29, í oddaleik um bronsið á heimavelli. GOG var þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:14.
Viktor Gísli stóð í marki GOG nær allan leikinn og varði 12 skot, þar af eitt vítakast auk þess sem hann gerði sér lítið fyrir og skoraði eitt mark. Hlutfallsmarkvarsla hans var 31,58%.
Óðinn Þór Ríkharðsson náði ekki að skora í kveðjuleik sínum fyrir Holstebro. Hann átti tvö skot að marki Viktors Gísla en hafði ekki erindi sem erfiði. Óðinn Þór flytur heim í sumar eftir þrigga ára veru í Danmörku og gengur til liðs við KA.
Leiktíðin er ekki þar með á enda hjá Viktori Gísla og félögum. Þeir taka þátt í úrslitahelgi dönsku bikarkeppninnar um komandi helgi.
- ÓL: Guðjón Valur er á meðal markahæstu á Ólympíuleikum
- Góður endasprettur nægði ekki gegn Slóvenum
- Streymi: Ísland – Slóvenía, æfingamót 18 ára landsliða, kl. 13.45
- Darija Zecevic hefur gengið til liðs við Fram
- Konur – helstu félagaskipti 2024