- Auglýsing -
Valgerður Elín Snorradóttir hefur ákveðið að kveðja Víking og ganga til liðs við Stjörnuna. Garðabæjarliðið segir frá því í dag að Valgerður Elín hafi skrifað undir þriggja ára samning.
Valgerður Elín skoraði 132 mörk í 21 leik Víkings í Grill 66-deildinni í vetur og var markahæst leikmanna liðsins.
„Valgerður hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár. Hún er rétthent skytta með góða yfirsýn og mikinn skotkraft, en getur einnig leyst miðjustöðuna afar vel sem gefur liðinu aukna breidd,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.
- Auglýsing -


