- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valur – ÍBV: nokkrar staðreyndir fyrir úrslitaleikinn

Bikar - HSÍ
- Auglýsing -

Valur og ÍBV leika til úrslita í Poweradebikar kvenna í handknattleik í Laugardalshöll klukkan 13.30 í dag. Hér fyrir neðan er teknar saman nokkrar staðreyndir um liðin.

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir markahæsti leikmaður ÍBV á keppnistímabilinu sækir að vörn Selfoss í undanúrslitaleiknum á miðvikudaginn. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson
Hin þrautreynda Hildigunnur Einarsdóttir verður í eldlínunni með Val. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson
  • Valur og ÍBV hafa einu sinni mæst í úrslitaleik í bikarkeppni kvenna, árið 2012. Valur vann örugglega 27:18.
  • ÍBV er í efsta sæti Olísdeildar kvenna með 32 stig eftir 18 leiki.
  • Valur er í öðru sæti Olísdeildar kvenna með 32 stig eftir 19 leiki.
  • ÍBV vann tvær af þremur viðureignum liðanna í deildinni á tímabilinu en Valur vann einn leik.


  • Síðast mættust liðin í Vestmannaeyjum 25. febrúar. ÍBV vann með eins marks mun, 29:28. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins.
  • ÍBV hefur leikið 18 leiki í röð í deildinni og í bikarnum án taps.
    Valur leikur til úrslita í fimmtánda sinn frá 1976 þegar keppt var fyrst í bikarkeppninni.
  • Valur hefur unnið bikarinn átta sinnum, síðast 2022, með sigri á Fram, 25:19.
  • ÍBV leikur til úrslita í áttunda sinn frá 1976 þegar keppt var fyrst í bikarkeppninni.
  • ÍBV hefur unnið bikarinn þrisvar sinnum, síðast 2004, með sigri á Haukum, 35:32.
  • Valur lék í fyrsta sinn til úrslita í bikarkeppninni árið 1983 og tapaði fyrir ÍR, 18:17.
  • ÍBV lék fyrst til úrslita í bikarkeppninni 1994 og tapaði fyrir Stjörnunni, 19:17.
  • Valur vann bikarinn í fyrsta skipti árið 1993 með sigri á Stjörnunni í úrslitaleik, 25:23.
  • ÍBV vann bikarinn í fyrsta sinn árið 2001 með sigri á Haukum, 21:18, eftir framlengingu.

  • ÍBV lék síðast í úrslitum bikarkeppninnar árið 2012.
  • Sigurður Bragason þjálfari ÍBV mætir til leiks í dag eftir að hafa tekið út tveggja leikja bann. Hann verður bikarmeistari í fyrsta sinn sem þjálfari í kvennaflokki í dag vinni ÍBV leikinn.
  • Ágúst Þór Jóhansson þjálfari Vals vann bikarinn í fyrsta sinn sem þjálfari árið 2000. Ágúst Þór stýrði Val spariklæddur til sigurs á Gróttu, 27:23, í framlengdri viðureign.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -