Valur vann fyrsta úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna gegn ÍBV, 39:33, í kaflaskiptri viðureign í N1-höllinni á Hlíðarenda í dag. ÍBV var tveimur mörkum yfir, 20:18, að loknum fyrri hálfleik. Næsta viðureign liðanna fer fram í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Vonir standa til þess að flautað verði til leiks klukkan 18.
ÍBV var sterkara liðið í fyrri hálfleik og hafði verðskuldað forskot í hálfleik, 20:18. Varnarleikurinn sat nokkuð á hakanum í afar hröðum og skemmtilegum leik.
ÍBV-liðið fór afar vel af stað í síðari hálfleik og náði sex marka forskoti, 25:19, eftir liðlega fimm mínútur. Upp úr því snerist viðureignin. Valsliðinu tókst jafnt og þétt að leysa úr 5/1 vörn ÍBV-liðsins. Munaði þar einna mest um innkomu Ásdísar Þóru Ágústsdóttur. Yfirvegun hennar færði ró yfir varnarleik Valsliðsins. Einnig batnaði varnarleikur Vals þegar kom fram í síðari hálfleik og betur gekk að koma böndum á Söndru Erlingsdóttur sem var allt í öllu í sóknarleik ÍBV. Um skeið var leikurinn í járnum eftir að Valur jafnaði metin. Þegar sóknarmistökum ÍBV fjölgaði nýtti Valsliðið þau út í ystu æsar.
Mörk Vals: Elísa Elíasdóttir 11, Lovísa Thompson 11, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 4, Auður Ester Gestsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 2, Mariam Eradze 2, Hafdís Renötudóttir 1.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 14, Agnes Lilja Styrmisdóttir 4, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Birna María Unnarsdóttir 1, Britney Emilie Florianne Cots 1.



