- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verður áfram á Selfossi næstu tvö ár

Vilius Rasimas, markvörður Selfoss. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Litháenski markmaðurinn Vilius Rašimas hefur framlengt samning sinn við Selfoss til ársins 2025. Rašimas er og hefur verið lykilmaður í meistaraflokki karla og einn af bestu markvörðum Olísdeildar karla undanfarin tímabil. 


Rašimas er með meðalmarkvörslu upp á 32% og var m.a. valinn besti leikmaður Selfoss á lokahófi deildarinnar árið 2021 ásamt því að vera valinn besti markmaður Olísdeildarinnar keppnistímabilið 2020/2021.


Samhliða því að vera markmaður í meistaraflokki karla hefur hann séð um markmannsþjálfun í yngri flokkum og akademíunni.

Rašimas er mjög reynslumikill enda hefur hann verið landsliðsmarkmaður Litháen síðan 2010. Hann kom til Selfoss frá þýska liðinu EHV Aue, en hann hefur meðal annars leikið með Kaunas í heimalandi sínu, pólska liðinu Azoty Pulawy og franska liðinu Limoges.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildunum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -