Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad halda áfram í vonina um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik eftir að þeir lögðu þýska liðið MT Melsungen, 31:30, í Kristianstad Arena í kvöld. IFK á eftir leik við Benfica á útivelli eftir viku auk þess sem Benfica á ólokna viðureign gegn Vardar Skopje í kvöld. Melsungen er efst í riðlinum sem stendur en er ekki alveg öruggt um að halda því þegar upp verður staðið, topplið riðilsins hleypur yfir fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
Einar Bragi skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad í sigurleiknum í kvöld. Sænski landsliðsmaðurinn Axel Månson fór á kostum og skoraði 15 mörk.
Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir MT Melsungen og Arnar Freyr Arnarsson eitt mark. Florian Drosten var markahæstur með sex mörk.

Vænlega staða Íslendingaliða
Elverum, með Tryggva Þórisson innan sinna raða, vann Skanderborg, 31:24, í Elverum í kvöld. Elverum er þar með komið með annan fótinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Skanderborg er efst í riðlinum.
Tryggvi skoraði ekki mark fyrir Elverum að þessu sinni. Péter Lukács og Kevin Gulliksen skoruðu sex mörk hvor.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, lék ekki með Skanderborg. Danski landsliðsmaðurinn Jóhan Hansen var markahæstur með níu mörk.
THW Kiel í fínum málum
Í riðli eitt er þýska liðið THW Kiel nær öruggt um sætið og þar með að fá farseðil beint í átta liða úrslit eftir öruggan sigur á Bidasoa Irun, 27:20, í Kiel í kvöld.




