- Auglýsing -
Angóla varð í gær Afríkumeistari í handknattleik kvenna í þriðja sinn í röð og í fjórtánda skipti alls. Lið Angóla vann Kamerún í úrslitaleik með 10 marka mun, 25:15, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:7.
Túnis vann Kongó, 22:17, í viðureigninni um þriðja sæti. Fjórar efstu þjóðirnar taka þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fer á Spáni í desember.
Alls tóku landslið 14 þjóða þátt í mótinu sem fram fór fram í Kamerún. M.a. var landslið Senegal. Ekki liggur fyrir hvort Birtney Cots fyrrverandi leikmaður FH og tilvonandi liðsmaður Stjörnunnar hafi tekið þátt í mótinu með landsliði Senegal en hún var í æfingahópi liðsins í vetur sem leið í Frakklandi.
- EM19-’25: Leikjadagskrá, riðlakeppni, úrslit og lokastaðan
- Sóknarleikurinn var frábær – vorum í brasi með vörnina
- Fimm marka tap fyrir Svartfellingum
- Geir reiknar með að vera hættur
- Einu liði færra – leikin verður þreföld umferð
- Auglýsing -