Handknattleiksdeild Víkings fagnaði nýliðnu tímabili í glæsilegum veislusal Safamýrar á dögunum. Leikmenn og þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna komu saman sem og þjálfarar yngri flokka, stjórn deildarinnar ásamt barna og unglingaráði (BUR). Þjálfarar fengu glaðning og þakkir fyrir tímabilið og leikmönnum hampað fyrir árangur tímabilsins.
Sebastian Popovich Alexandersson þjálfari kvennaliðs Víkings veitti leikmönnum viðurkenningu fyrir árangur vetrarins en leikmenn völdu besta liðsfélagann.
Varnarmaður ársins: Sunna Katrín Hreinsdóttir.
Sóknarmaður ársins: Hafdís Shizuka lura.
Leikmaður ársins: Hafdís Shizuka lura.
Besti liðsfélaginn: Andrea Ósk Þorkelsdóttir.
Efnilegasti leikmaðurinn: Valgerður Elín Snorradóttir.
Aðalsteinn Eyjólfsson yfirmaður handknattleiksmála og þjálfari meistaraflokks karla veitti leikmönnum viðurkenningar en líkt og hjá kvennaliðinu völdu leikmenn besta liðsfélagann.
Varnarmaður ársins: Sigurður Páll Matthíasson.
Sóknarmaður ársins: Ásgeir Snær Vignisson.
Leikmaður ársins: Jóhann Reynir Gunnlaugsson.
Besti liðsfélaginn: Þorfinnur Máni Björnsson.
Efnilegasti leikmaðurinn: Kristján Helgi Tómasson.
Helga Þorvarðssyni og Ragnari Kristinssyni var veitt sérstök viðurkenning, bestir á borði, sem þakklætisvottur fyrir þátttöku þeirra í heimaleikjum.
Lokahóf: Baldur Fritz og Katrín Tinna best hjá ÍR
Lokahóf: Jóhannes Berg og Telma best hjá FH
Lokahóf: Gróttufólk kom saman gerði upp veturinn
Lokahóf: Lonac og Dagur Árni best hjá KA/Þór og KA
Lokahóf: Haraldur og Sólveig best – Björgvin Páll heiðraður