- Auglýsing -
- Torsten Laen hefur verið kjörinn formaður danska handknattleikssambandsins. Ósamstaða hefur verið meðal stjórnarmanna danska handknattleikssambandsins eftir að Morten Stig Christensen var bráðkvaddur í nóvember. Sá sem tók við af Christensen hætti í febrúar og bar því við að ekki væri samstaða um sig. Eftir nokkrar vangaveltur beindust sjónir marga að Laen sem er fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður Dana í handknattleik.
- Hendrik Pekeler línumaður THW Kiel sleit hásin í lok leiktíðarinnar í Þýskalandi um nýliðna helgi. Hann leikur ekki með Kiel fyrr en eitthvað verður liðið inn á næsta ár. Reiknað er með að Pekeler verði frá keppni í sex til átta mánuði.
- Patrick Wiencek hefur lagt skóna á hilluna góðu 36 ára gamall. Wiencek hefur síðustu 13 ár leikið með THW Kiel og verið einn traustasti leikmaður liðsins, jafnt í vörn sem sókn. Wiencek lék 159 landsleiki fyrir Þýskaland frá 2009 til 2022. Hann fær kveðjuleik í Kiel 25. júlí þar sem margir núverandi og fyrrverandi samherjar jafnt sem andstæðingar taka þátt.
- Aleš Pajović var kjörinn þjálfari keppnistímabilsins í Austurríki. Pajović lét af störfum með landslið Austurríkis í vor og einbeitir sér alveg að þjálfun Flensburg í Þýskalandi. Pajović þjálfaði austurríska karlalandsliðið í sex ár. Forveri hans með austurríska landsliðið var Patrekur Jóhannesson.
- Sandra Toft landsliðsmarkvörður Danmerkur verður frá keppni á næstu leiktíð. Hún gengur með barn sem kemur í heiminn í desember. Toft varð Evrópumeistari á dögunum annað árið í röð með ungverska liðinu Györi.
- AEK Aþena jafnaði í gær metin í einvíginu við Olympiakos um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla með sigri, 30:27, á heimavelli Olympiakos. Þar með hafa liðin unnið tvo leiki hvort og leika hreinan úrslitaleik á föstudaginn á heimavelli AEK.
- Auglýsing -