- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Odense meistari og Wagner

Leikmenn Odense Håndbold, danskir meistarar í handknattleik 2025. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Odense Håndbold varð í gærkvöld danskur meistari í handknattleik kvenna. Odense-liðið vann Team Esbjerg, meistara tveggja síðustu ára í oddaleik úrslitum á heimavelli sínum, 33:31. Esbjerg vann fyrstu viðureign liðanna en Odense-liðið náðu vopnum sínum, jafnaði metin, og hafði betur í þriðja og síðast leiknum. Þrjú ár eru liðin sína Odense vann síðasta danska meistaratitilinn.
  • Norðmaðurinn Ole Gustav Gjekstad lætur nú af störfum sem þjálfari Odense og einbeitir sér alfarið að norska kvennalandsliðinu sem hann tók við af Þóri Hergeirssyni um áramóti.
  • Tímabilið verður leikmönnum Odense Håndbold því auk þess að vinna danska mestaratitilinn varð liðið deildarmeistari í Danmörku og lék til úrslita í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn auk þess að vera í fyrsta skipti í undanúrslitum keppninnar.
  • Austurríski línumaðurinn öflugi, Tobias Wagner, hefur ákveðið að kveðja HC Erlangen í Þýskalandi í sumar og færa sig yfir landamærin til Frakklands. Wagner hefur samið við Limoges til næstu tveggja ára. Línumaður Limoges, Valentin Aman, verður frá keppni nær alla næstu leiktíð vegna meiðsla. Wagner er þar með auðfúsugestur í taktfastan hóp Limoges. Hann þekktir vel til í Frakklandi eftir tveggja ára veru í Toulouse 2021 til 2023.
  • Hinn gamalreyndi spænsku handknattleiksmaður Alberto Entrerrios er þjálfari Limoges.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -