- Auglýsing -

Molakaffi: Boð í ráðhúsið, meistaraverk, Sandel, unnu ungmennamótið

Evrópumeistarar Magdeburg mæta á ráðhústorg borgarinnar í dag. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -
  • Borgarstjóri Magdeburg, Simone Borris, var ekki lengi að senda Evrópumeisturum heillskeyti með sigurinn í Meistaradeild Evrópu í gær. Hún bauð um leið leikmönnum, þjálfurum og öðru starfsfólki liðsins til veislu í ráhúsinu í síðdegis og til til fagnaðar með íbúum Magdeburg á ráðhústorginu eins áður þegar SC Magdeburg hefur unnið Evrópu- og landsmeistaratitla. 
  • Mathias Gidsel markahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu og leikmaður Füchse Berlin sagði í viðtali við danska fjölmiðla eftir tap Füchse Berlin fyrir Magdeburg í úrslitaleik Meistaradeildar í gær að leikurinn hafi verið meistaraverk af hálfu Magdeburgar-liðsins. „Að þessu sinni mættust tvo lið sem hafa ekki tapað leik í meira en þrjá mánuði og ljóst að annað hvort liðanna yrði að bíta í súra eplið. Við verðum bara að viðurkenna að um meistaraverk var að ræða hjá Magdeburg. Við lékum alls ekki okkar versta leik,“ sagði Gidsel. 
  • Orðrómur er uppi um að sænski handknattleiksmaðurinn Lukas Sandell yfirgefi ungverska meistaraliðið One Veszprém og gangi til liðs við erkifjendurna í Pick Szeged
  • Danska liðið GOG vann ungmennakeppni í handknattleik í piltaflokki 18 ára og yngri sem leikin var samhliða úrslitaleikjum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik um liðna helgi. GOG vann Veszprém, 37:28, í úrslitaleik í Lanxess Arena í gærmorgun. 
  • Barcelona vann Eurofarm Pelister frá Norður Makedóníu í leiknum um þriðja sætið, 55:28, í mikilli markaveislu. 
  • Handknattleikssamband Evrópu ákvað um helgina að ungmennakeppni kvenna, 18 og yngri, færi fram í fyrsta sinn á næsta ári og leikið verður til úrslita í Búdapest samhliða úrslitahelgi Meistaradeildar kvenna.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -