- Auglýsing -

Öruggur sigur á Norður Makedóníumönnum

Ísak Steinsson markvörður átti framúrskarandi leik gegn Norður Makedóníu í dag. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið vann Norður Makedóníu, 34:28, í þriðju og síðustu umferð F-riðils heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í Katowice í Póllandi eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 15:14. Ísland hafnaði þar með í 3. sæti riðilsins og leikur um sæti 17 til 24 á næstu dögum. Fyrsti leikurinn verður á mánudaginn klukkan 12 gegn annað hvort Marokkó eða Mexíkó.

Íslenska landsliðið sem tók þátt í leiknum við Norður Makedóníu í dag. Ljósmynd/IHF


Eftir að Færeyingar unnu Rúmena í morgun var ljóst að íslenska liðið átti ekki lengur möguleika á að komast í milliriðlakeppnina um efstu 16 sætin.
Íslenska liðið var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda í dag. Mestur var munurinn fimm mörk þegar á leið fyrri hálfleik. Endasprettur fyrri hálfleiks var í höndum Norður Makedóníu pilta sem minnkuðu muninn í eitt mark, 15:14.
Fljótlega í síðari hálfleik hristi íslenska liðið andstæðinga sína af sér og náði mest níu marka forskoti þegar á leið.


Mörk Íslands: Elmar Erlingsson 9/3, Össur Haraldsson 6, Haukur Ingi Hauksson 5, Andri Fannar Elísson 4, Sigurður Páll Matthíasson 4, Skarphéðinn Ívar Einarsson 4, Birkir Snær Steinsson 1, Eiður Rafn Valsson 1.
Varin skot: Ísak Steinsson 15/1, 36%.

Mörk Norður Makedóníu: Dimitar Uzunchev 10, Mario Stojanovski 5, David Dimevski 4, Aleksandar Petkovski 2, Mirche Kalajdjieski 2, Jovan Danevski 1, Nenad Belistojanoski 1, Slavcho Shuleski 1, Andrej Gligorov 1, Valentin Karasmanakis 1.
Varin skot: David Brestovac 6, 21% – Ivan Galevski 0.

Ítarlegri tölfræði.

HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan

Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -