- Auglýsing -

Elmar er í þriðja sæti

Elmar Erlingsson leikmaður 21 árs landsliðsins. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Elmar Erlingsson er í þriðja sæti eftir tvær umferðir á lista markahæstu leikmanna heimsmeistaramóts 21 árs landsliða sem stendur yfir í Póllandi. Elmar hefur skorað 21 mark, fimm færri en Færeyingurinn Óli Mittún sem er markahæstur. Athyglisvert er að þrír markahæstu leikmenn mótsins leika allir í F-riðli mótsins.


Þriðja og síðasta umferð riðlakeppni HM verður leikin á morgun þegar 16 leikir fara fram. Eftir leikina verður keppninni skipt upp í tvo hluta. Tvö efstu lið hvers riðil leika um 16 efstu sætin en tvö þau neðri í hverjum riðli leik um sæti 17 til 32. Liðið sem hafnar í 17. sæti vinnur forsetabikarinn.

Íslenska landsliðið á ennþá möguleika á sæti í hópi sextán efstu liða. Til þess þar þó að treysta á að Færeyingar hvorki vinni né geri jafntefli við Rúmena í lokaumferðinni. Geris það verður íslenska liðið að vinna stórsigur á Norður Makedóníu í leik sem hefst klukkan 12 á morgun. Færeyingar og Rúmenar hefja leik klukkan 9.45.

HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan

Markahæstir á HM 21 árs landsliða:

Óli Mittun, Færeyjum 26/7.
Daniel Stanciuc, Rúmeníu, 24/1.
Elmar Erlingsson, Íslandi, 21/9.
Naël Tighiouart, Frakklandi, 19/7.
Mathias Kragh Pedersen, Danmörku, 17.
Kousay Ben Frej, Túnis, 16.
Magnus Storgaard Pedersen, Danmörku, 16.
Luca Sigrist, Sviss, 15.
Isak Vedelsbøl, Færeyjum, 14/4.
Abdellah Razgui, Marokkó, 14/1.
Nikos Sarlod, Sviss, 14/8.
Uros Mitrovic, Serbíu, 14.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -