- Auglýsing -

Molakaffi: Smits, Damgaard, Lindberg, Gidsel og fleiri

Kay Smits og Aron Pálmarsson í leik á EM 2022. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Hollenski handknattleiksmaðurinn Kay Smits hefur samið við Gummersbach til þriggja ára. Kemur hann til félagsins í sumar eftir tveggja ára vist hjá Flensburg.
  • Smits náði sér aldrei fullkomlega á strik með Flensburg vegna hjartsláttartruflana og var talsvert frá keppni. Forráðamenn Gummersbach segja að Smits hafi komist klakklaust í gegnum læknisskoðun og þeir séu einnig meðvitaðir um þau vandræði sem Hollendingurinn hefur glímt við. Guðjón Valur Sigurðsson er sem kunnugt er þjálfari Gummersbach.

Smits er 28 ára gamall og örvhent skytta. Hann sló í gegn með Magdeburg, á síðari hluta tímabilsins 2022/2023 þegar hann leysti Ómar Inga Magnússon af og átti hvern stórleikinn á eftir öðrum. 

  • Danski handknattleiksmaðurinn Michael Damgaard sem fagnaði sigri með félögum sínum í Meistaradeild Evrópu á síðasta sunnudag hefur samið við nýliða dönsku úrvalsdeildarinnar, HØJ Elite. Nokkuð er síðan að ljóst varð að hið hinn 35 ára gamli Dani ætlaði að flytja heim frá Þýskalandi í sumar eftir 10 ár hjá SC Magdeburg
  • Fleiri þekktir handknattleiksmenn hafa samið við HØJ Elite á síðustu mánuðum og má þar m.a. nefna Svíann Hampus Wanne sem leikið hefur með Barcelona síðustu ár.
  • Hans Lindberg hefur framlengt samning sinn við HØJ Elite til eins árs. Lindberg kom til félagsins fyrir ári eftir langa veru í Þýskalandi
  • Mathias Gidsel var kjörinn leikmaður ársins í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Valið kom fáum á óvart. Gidsel var frábær á leiktíðinni með Füchse Berlin og átti stóran þátt í fyrsta meistaratitli félagsins. Gidsel  fékk 45% atkvæða. Annar varð þýski landsliðsmaðurinn og markakóngur deildarinnar, Marko Grgic. Andreas Wolff hafnaði í þriðja sæti.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -