Keppni í Meistaradeild Evrópu lauk fyrir viku þegar Magdeburg vann Füchse Berlin, 32:26, í úrslitaleik í Lanxess Arena í Köln. Ekki er aðeins um gleði og ánægju að tefla þegar leikið er í Meistaradeildinni. Talsverðir fjármunir eru í húfi fyrir félögin sem taka þátt. Ekki síst þau sem ná hvað lengst.
Samkvæmt spænska fréttamiðlinum Mundo Deportivo deildi Handknattleikssamband Evrópu, EHF, niður ríflega 4,7 milljónum evra til þeirra sextán félaga sem tóku þátt – sem samsvarar um 670 milljóna króna. Þar af 750.000 evrur, ríflega 107 milljónir króna, til liðanna fjögurra sem tóku þátt í úrslitahelginni.
SC Magdeburg fékk hæstu upphæðina eftir sigurinn í úrslitaleiknum. Félagið fékk samtals 590.000 evrur fyrir tímabilið, um 84 milljónir. Rúmlega helmingurinn, 300.000 evrur, voru fyrir að vinna keppnina.
Á hinn bóginn verður FC Barcelona að horfast í augu við verulega lækkun frá síðasta ári. Handboltalið Barcelona endaði í fjórða sæti og þénaði aðeins 379.000 evrur á þessu tímabili, sem samkvæmt Mundo Deportivo er 38 prósenta lækkun miðað við síðasta tímabil þegar liðið vann mótið.
Fyrir Final4-helgina hafði Barcelona þegar þénað 304.000 evrur í gegnum fasta upphæð fyrir þátttöku, sigurbónusa, stig í riðlakeppninni og árangur í átta liða úrslitum. Fjórða sætið gaf þeim 75.000 evrur til viðbótar. Ef Barcelona hefði unnið Meistaradeildina hefði hlutur félagsins orðið 604.000 evrur.
Füchse Berlin fékk 541.000 evrur fyrir annað sætið, á meðan HBC Nantes í þriðja sæti fékk 455.000 evrur.
Svona var peningunum skipt í Meistaradeildinni 2024-25 (í evrum):
Úrslitahelgin (1.965.000 evrur)
- SC Magdeburg (Þýskaland) – 590.000.
- Füchse Berlin (Þýskaland) – 541.000.
- HBC Nantes (Frakkland) – 455.000.
- FC Barcelona (Spánn) – 379.000.
Átta liða úrslit (1.118.000 evrur).
5. One Veszprém (Ungverjaland) – 307.000.
6. Pick Szeged (Ungverjaland) – 271.000.
7. Sporting CP (Portúgal) – 270.000.
8. Aalborg Håndbold (Danmörk) – 270.000.
16 liða úrslit (930.000 evrur)
9. Paris SG (Frakkland) – 262.000.
10. Orlen Wisla Plock (Pólland) – 227.000.
11. Industria Kielce (Pólland) – 221.000.
12. Dinamo Bucuresti (Rúmenía) – 220.000.
Riðlakeppni (705.000 evrur)
13. Kolstad (Noregur) – 195.000.
14. Eurofarm Pelister (Norður-Makedónía) – 180.000.
15. HC Zagreb (Króatía) – 175.000.
16. Fredericia Håndboldklub (Danmörk) – 155.000.