- Auglýsing -

Molakaffi: Lathoud, Kristiansen, Jørgensen, Grøndahl, Nahi

Denis Lathoud handknattleiksmaður er látinn. Ljósmynd/PSG Handball
- Auglýsing -
  • Denis Lathoud, franskur handknattleiksmaður og einn leikmanna sigurliðs Frakka á HM á Íslandi 1995 lést í fyrradag, 59 ára gamall. Lathoud var einnig í bronsliði Frakka á Ólympíuleikunum 1992 í Barcelona en franska liðið vann það íslenska. Hann var einnig með franska landsliðinu á ÓL fjórum árum síðar í Atlanta. Lathoud lék alls 164 landsleiki og skoraði í þeim 464 mörk. 
  • Hin þrautreynda norska landsliðskona, Veronica Kristiansen, gekk á laugardaginn í hjónaband með unnusta sínum til nokkurra ára, Ádám Devecseri. Þau eiga tvö börn, dóttur sem kom í heiminn sumarið 2023 og son sem fæddist í janúar. Kristiansen á ár eftir af samningi sínum hjá Evrópumeisturum Györi í Ungverjalandi
  • Nicolaj Jørgensen leikmaður Sønderjyske og markakóngur dönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili var kjörinn mikilvægasti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar. Jørgensen setti markamet í úrvalsdeildinni, skoraði 275 mörk. 
  • Norðmaðurinn Tobias Grøndahl varð annar í kjörinu en hann hefur kvatt GOG og leikur með Füchse Berlin í Þýskalandi á næstu leiktíð. Jørgensen og Grøndahl fengu samanlagt 75% atkvæða í kjörinu.
  • Franski handknattleiksmaðurinn Dylan Nahi leikur ekki með pólska liðinu Industria Kielce á fyrstu vikum keppnistímabilsins í haust. Hann þarf að fara í aðgerð á öxl vegna meiðsla. Nahi hefur verið hjá Kielce í fjögur ár.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -