Framundan er endasprettur á heimsmeistaramóti karla í handknattleik, skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Mótið hófst 18. júní í Grikklandi og í Þýskalandi og lýkur með úrslitaleik á sunnudaginn 29. júni í Katowice í Póllandi.
Það sem vekur óneitanlega athygli þegar litið er yfir hvaða átta þjóðir verða í efstu sætum þá er Spánverja ekki að finna í þeim hópi. Sá árgangur sem nú skipar 21 árs landslið Spánar hefur unnuð þrjú síðustu mót; EMU18 2022, HMU19 2023 og EMU20 2024.
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá fyrir alla þá leiki sem eftir eru á mótinu, þar á meðal um sæti níu til 32.
Úrslit leikjanna verða skráð inn eftir því sem þeim vindur fram allt fram á sunnudagskvöld þegar heimsmeistarabikarinn fer á loft og úrslit síðasta leiksins liggja fyrir.
Átta liða úrslit fimmtudaginn 26. júní:
Slóvenía – Færeyjar.
Portúgal – Egyptaland.
Danmörk – Noregur.
Þýskaland – Svíþjóð.
Krosspil, sæti fimm til átta föstudaginn 27. júní:
Taplið átta liða úrslita.
Undanúrslit föstudaginn 27. júní.
Sigurlið átta liða úrslita.
Úrslitaleikir sunnudaginn 29. júní.
Sæti níu til þrjátíu og tvö
Krossspil, sæti 9 til 16, fimmtudaginn 26. júní.
Austurríki – Frakkland.
Króatía – Spánn.
Ungverjaland – Rúmenía.
Japan – Sviss.
Leikir um sæti föstudaginn 27. júní.
Krossspil, sæti 17 til 24, 26. júní:
Pólland – Ísland, kl. 12 (íslenskur tími).
Alsír – Serbía.
Argentína – Marokkó.
Suður Kórea – Túnis.
Leikir um sæti föstudaginn 27. júní:
17. sæti (forsetabikarinn): Pólland/Ísland – Alsír/Serbía.
19. sæti: Pólland/Ísland – Alsír/Serbía.
21. sæti: Argentína / Marokkó – Suður Kórea / Túnis.
24. sæti: Argentína / Marokkó – Suður Kórea / Túnis.
Krossspil, sæti 25 til 32, 26. júní:
Úrúgvæ – Mexíkó.
Kanada – Sádi Arabía.
Brasilía – Norður Makedónía.
Bandaríkin – Barein.
Leikir um sæti föstudaginn 27. júní.
HMU21-’25: Milliriðlar, úrslit, staðan, allir leikir
HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan