- Auglýsing -
- Sænsk sjónvarpsstöð sem sendir út alla leiki í sænsku úrvalsdeildunum í handknattleik kvenna og karla, svipuð Handboltapassanum hér á landi, hefur ákveðið að lækka áskriftarverðið hressilega. Á síðustu leiktíð kostaði mánaðaráskrift 449 kr. en verður lækkuð niður í 199 kr., jafnvirði 2.600 íslenska kr. Áskrift að Handboltapassanum hér á landi kostaði 1.990 kr á síðasta keppnistímabili.
- HF Karlskrona, sem Ólafur Andrés Guðmundsson fyrrverandi landsliðsmaður leikur með, hefur ákveðið að taka þátt í Evrópudeildinni í handknattleik á næstu leiktíð. Félaginu bauðst sæti eftir að meistarar Ystads IF ákváðu að afþakka þátttöku. HF Karlskrona hefur ekki tekið þátt í Evrópukeppni félagsliða síðan á níunda áratug síðustu aldar.
- Forsvarsmenn norska úrvalsdeildarliðsins Larvik sögðu upp þjálfaranum Arne Senstad í gær. Kom uppsögnin mörgum á óvart. Larvik hafnaði í þriðja sæti í norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, stigi á eftir Sola sem varð í öðru sæti. Senstad átt ár eftir af samningnum.
- Larvik, líkt og fleiri lið í Noregi, hefur neyðst til að draga saman seglin og spara. Hvort uppsögnin tengist sparnaði eða öðru hefur ekki komið fram. Senstad þjálfaði Larvik í tvö ár.
- Slóvenski handknattleiksmaðurinn Miha Zarabec hefur framlengt samning sinn við pólska meistaraliðið Wisla Plock til eins árs.
- Franski markvörðurinn Vincent Gerard segir að ekki komi til greina að taka fram handboltaskóna á nýja leik. Hann hætti eftir Ólympíuleikana fyrir ári en endurskoðaði ákvörðun sína snemma árs þegar Barcelona gerði honum tilboð um að taka fram skóna og standa vaktina með Emil Nielsen út leiktíðina þegar Gonzalo Pérez de Vargas sleit krossband.
- Gerard segir úthaldið hjá Barcelona hafa verið svanasöng sinn á handboltavellinum. Hann ætlar að snúa sér að þjálfun yngri markvarða í Metz og nágrenni. Í samtali við franska sjónvarpsstöð sagði Gerard vel koma til greina að hann söðli um og fái sér vinnu í bókabúð.
- Auglýsing -