- Auglýsing -

Molakaffi: Leikið aftur í dag, er fyrirmynd, Lönnborg

- Auglýsing -
  • Í dag fer fram hinn umdeildi leikur milli Tusem Essen og Dessau-Roßlauer HV í þýsku 2. deildinni í handknattleik karla en liðunum var fyrr í mánuðinum fyrirskipað af dómstól að mætast á nýja leik eftir að eftirlitsmaður og tímavörður gerðu mistök á síðustu sekúndum viðureignar liðanna 29. apríl.  Þótti mistökin svo alvarleg að ekki var hægt að horfa framhjá þeim. Dessau-Roßlauer HV vann leikinn.
  • Keppni í 2. deildinni lauk laugardaginn 7. júní. Voru leikmenn beggja liða  komnir í sumarleyfi og sumir jafnvel að losna undan samningum þegar dómur féll um að leika skyldi á ný og leikmenn kallaðir til baka. Einnig var einn leikmaður úr hvori liði með U21 árs landsliði Þýskalands á heimsmeistaramótinu í Póllandi. Þeir fóru heim frá mótinu í gær.
  • Mikið er í húfi í leiknum. Dessau-Roßlauer HV verður að vinna til þess að forðast fall. Tapi Dessau-Roßlauer HV leiknum heldur Hamm-Westfalen sæti sínu en liðið var fallið. Ef Essen vinnur færist liðið ofar í endanlegri röð liðanna og sleppur þar með við aðra umferð bikarkeppninnar í haust. Grosswallstadt fellur fyrir vikið neðar og kemur inn í aðra umferð bikarkeppninnar í stað þeirrar þriðju.  

Axarskaft setur þýsku 2. deildina í uppnám – fallbaráttan í óvissu

  • Norska krabbameinsfélagið segir hugrekki og einlægni handknattleikskonunar Camillu Herrem við að ræða opinskátt um sjúkdóm sinn auðvelda öðrum konum í sömu sporum að ræða veikindi sín og áfallið sem þeim fylgir. Um leið hafi Herrem vakið konur til vitundar um að fylgjast grannt með líkama sínum og leita óhikað til læknis ef spurningar vakna. Krabbameinsfélagið segir Herrem vera fyrirmynd í þessum efnum. 
  • Eins og handbolti.is sagði frá á dögunum birti Herrem, sem er ein reyndasta handknattleikskona Noregs, einlæga tilkynningu á samfélagsmiðlum þess efni að hún hafi greinst með krabbamein í brjósti. Herrem hóf lyfjameðferð á föstudaginn, þremur vikum eftir að hún fann hnút í öðru brjósti.
  • Finnska handknattleikskonan Julia Lönnborg sem lék með Stjörnunni á síðustu leiktíð hefur flutt til Svíþjóðar og gengið til liðs við Hammarby. Lönnborg er fædd í Svíþjóð og hefur búið þar lengst af þótt foreldrar hennar séu finnskir. Hún á að baki nærri 30 landsleiki fyrir Finnland.
  • Lönnborg skoraði eitt mark í 20 leikjum með Stjörnunni í Olísdeildinni.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -