- Auglýsing -
- Stjórnendur þýsku handknattleiksdeildanna hafa hert á reglum með auglýsingaborða á gólfum keppnishalla vegna tíðra slysa og alvarlegra meiðsla handknattleiksfólk. Talið er að rekja megi mörg slys til óviðunandi borða sem eru annað hvort ekki með svokallaðri sleipuvarnarfilmu eða eru notaðir of lengi á gólfum keppnishalla. Reglurnar voru kynntar fyrir helgina og eiga að taka gildi nú þegar.
- Úrslitakeppni efstu deildar kvenna í þýska handboltanum þótti takast vel í vor en hún var þá reynd í fyrsta sinn um langt árabil. Örlitlar breytingar verða gerðar á forminu á næstu leiktíð í ljósi reynslunnar í vor en að öðru leyti telja forsvarsmenn félaganna úrslitakeppnina til bóta, bæði lengir hún aðeins tímabilið og eykur áhuga almennings. Metaðsókn var á leiki efstu deildar kvenna í Þýskalandi á síðasta tímabili.
- Þrjár íslenskar landsliðskonur leika í þýsku 1. deildinni á næstu leiktíð, allar með sama liðinu. Þetta eru Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir. Allar leika þær með Blomberg-Lippe sem lék til úrslita um þýska meistaratitilinn í vor auk þess að ná sæti í úrslitahelgi bikarkeppninnar.
- Fyrsta umferð bikarkeppninnar verður leikin 22. til 24. ágúst. Fimm efstu lið úrslitakeppninnar í vor sitja yfir í fyrstu umferð. Auk Blomberg-Lippe eru það HB Ludwigsburg, Borussia Dortmund,Thüringer HC og HSG Bensheim/Auerbach.
- Hið árlega Partille Cup handknattleiksmót hófst í Gautaborg og Partille í morgun. Mótið hefur farið fram ár hvert frá 1970 að undanskildum árum þegar covid herjaði á heiminn. Reiknað er með um 1.400 keppendum frá 50 löndum. Að vanda tekur talsverður fjöldi íslenskra félagsliða þátt í mótinu.
- Samhliða mótinu að þessu sinni fer fram Opna Evrópumótið í handknattleik karla, 19 ára og yngri. Íslenska landsliðið er eitt ellefu liða sem tekur þátt. Liðið leikur tvo leiki í dag, gegn Egyptum og Spánverjum. Leiktími er 2×20 mínútur.
- Auglýsing -