- Auglýsing -
Handknattleiksráð Reykjavíkur, HKRR, stóð um helgina fyrir æfingum hjá Reykjavíkurúrvali drengja fæddum 2006. 28 strákar voru boðaðir og úr varð flottur hópur sem æfði tvívegis í Víkinni og jafnoft í Valsheimilinu.
Æfingarnar eru undirbúningur fyrir alþjóðlegt mót, Balaton Cup, sem fram fer í Ungverjalandi í janúar 2022 þar sem Reykjavík hefur verið boðið að senda lið til þátttöku. Stórlið Veszprém hefur staðið fyrir mótinu nokkur undanfarin ár.
Næstu æfingabúðir hjá hópnum verða í september.
Meðfylgjandi er nafnlisti þeirra drengja sem valdir voru til þátttöku í æfingabúðunum auk nokkurra mynda af Facebook síðu HKRR.
- Auglýsing -