Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn í starf faglegs ráðgjafa hjá handknattleiksdeild FH. Aron mun koma að frekari uppbyggingu yngri flokka og afreksstarfs deildarinnar og vinna náið með stjórn og skrifstofu handknattleiksdeildar FH. Frá þessu segir handknattleiksdeild FH í tilkynningu í dag.
Aron er sigursælasti íþróttamaður Íslandssögunnar en hann vann á sínum ferli 34 stóra titla. Hann varð landsmeistari 13 sinnum á ferlinum og þá vann Aron Meistaradeild Evrópu í þrígang og var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgar Meistaradeildarinnar í tvígang. Einnig var hann kjörinn Íþróttamaður ársins 2012 af Samtökum íþróttafréttamanna. Á atvinnumannaferli sínum lék Aron með THW Kiel, Veszprém, Barcelona og Álaborg. Aron spilaði 182 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Býr yfir einstaklegri reynslu
„Við erum einstaklega stolt af því að fá Aron inn í starfið hjá FH. Hann hefur mikla ástríðu fyrir félaginu og býr yfir einstakri reynslu og þekkingu sem mun hjálpa félaginu á víðum grunni. Aron mun hjálpa FH að taka næstu skref í skipulagi starfsins í heild og gera þannig gott starf ennþá betra,“ sagði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH í tilefni dagsins.
Hlakkar til starfsins
„Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um þegar FH leitaði til mín um að koma inn í starfið hjá félaginu. Eins og allir vita þá er ég gríðarlegur FH-ingur og hef miklar skoðanir á því hvernig hægt sé að gera hlutina. Ég hlakka til að vinna með ungum og upprennandi FH-ingum og deila þekkingu minni. Ég vona að sú reynsla sem ég bý yfir muni hjálpa félaginu að eflast enn frekar,“ sagði Aron Pálmarsson í tilkynningu handknattleiksdeildar FH.