- Auglýsing -
- Tumi Steinn Rúnarsson átti stórleik, skoraði 10 mörk og átti þrjár stoðsendingar, fyrir Alpla Hard þegar liðið tapaði fyrir Krems, 32:31, í þriðju umferð austurrísku 1. deildarinnar í dag. Tryggvi Garðar Jónsson eitt mark fyrir Alpla Hard sem Hannes Jón Jónsson þjálfar. Alpla Hard er með eitt mark í næsta neðsta sæti eftir þrjár umferðir.
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk í sjö marka sigri Amo HK á Västeråslrsta, 33:26, í annarri umferð sænsku úrvalsdeildinni í dag. Amo HK hefur unnið tvo fyrstu leiki tímabilsins.
- Birgir Steinn Jónsson skoraði ekki mark þegar lið hans, IK Sävehof, tapaði óvænt fyrir IF Hallby HK, 28:26, á heimavelli í annarri sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.
- Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði ekki mark þegar lið hans, Vinslövs, tapaði með eins marks mun fyrir GF Kroppskultur, 22:21, í fyrstu umferð næst efstu deild sænska handknattleiksins í dag.
- Ísak Gústafsson skoraði fjögur mörk og Guðmundur Bragi Ástþórsson tvö mörk þegar lið þeirra TMS Ringsted gerði jafntefli við Ribe-Esbjerg, 32:32, í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
- Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur af mörkunum sem Ribe–Esbjerg-liðsins skoraði. Liðin tvö eru í níunda og tíunda sæti deildarinnar með þrjú stig hvort eftir fjórar umferðir.
- Jón Ísak Halldórsson skoraði þrjú mörk fyrir Lemvig í jafntefli, 30:30, gegn HC København í næst efstu deild danska handknattleiksins í dag. Þetta var fyrsta stig Lemvig í fjórum fyrstu leikjum deildarinnar.
- Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks þar sem Íslendingar koma við sögu er að finna hér.