- Auglýsing -
- Markus Gaugisch þjálfari þýska kvennalandsliðsins í handknattleik kynnir í dag hvaða 18 leikmenn hann ætlar að tefla fram á heimsmeistaramótinu í handknattleik kvenna sem hefst 26. nóvember. Fyrsti leikur þýska landsliðsins verður gegn íslenska landsliðinu í Porsche-Arena í Stuttgart miðvikudaginn 26. nóvember klukkan 17.
- Franski landsliðsmaðurinn Dika Mem meiddist í æfingabúðum franska landsliðsins fyrir helgina og tók ekki þátt í vináttuleik við ítalska landsliðið á laugardaginn. Barcelona segir að Mem verði væntanlega frá keppni í hálfan mánuð. Vonir standa til þess að Mem verði með Barcelona gegn Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu 13. nóvember.
- Jonas Wille landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik karla þykir valtur í sessi. Forráðamenn norska handknattleikssambandsins segja að ekki verði tekin ákvörðun um það hvort Wille standi til nýr samningur eða ekki fyrr en að loknu Evrópumótinu í janúar. Frammistaða norska landsliðsins á HM í upphafi þessa árs olli vonbrigðum og var Wille harðlega gagnrýndur.
- Filip Taleski landsliðsmaður Norður Makedóníu er skyndilega hættur að leika með Vardar Skopje en hann kom til félagsins í sumar eftir tveggja ára veru hjá Benfica í Portúgal. Taleski mun ekki hafa lyndað hjá Vardar. Ekki liggur fyrir hvert hugur Taleski stefnir en í sumar áður en hann gekk til liðs við Vardar mun Ohrid í Norður Makedóníu borið víur sínar í hann.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



