- Auglýsing -
- Kristján Örn Kristjánsson, Donni, náði sér ekki á strik í gærkvöld þegar lið hans, Skanderborg, tapaði með 11 marka mun fyrir Nordsjælland í upphafsleik 10. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Donni, skoraði eitt mark úr þremur skotum og átti eina stoðsendingu í leiknum sem fram fór á Sjálandi.
- Skanderborg er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar í Danmörku en Nordsjællandi í 11. sæti af 14 liðum deildarinnar. Úrslitin, og ekki síst mikill munur þegar upp var staðið, kemur á óvart.
- Danski hornamaðurinn Buster Juul ætlar að ganga til liðs við Bjerringbro/Silkeborg á næsta sumri. Frá þessu var greint í gær en nokkuð er um liðið síðan Juul tilkynnti að hann ætlaði að breyta til eftir 12 ár í herbúðum danska meistaraliðsins Aalborg Håndbold. Juul er markahæsti leikmaður í sögu Aalborg Håndbold. Koma hans verður væntanlega búhnykkur fyrir Bjerringbro/Silkeborg.
- Rúmeninn Adrian Vasile sem tók við þjálfun rúmenska meistaraliðsins CSM Búkarest í sumar varð að taka pokann sinn í gær. Vasile kom til félagsins í kjölfar þess að Helle Thomsen sagði upp starfi sínu og hóf þjálfun danska kvennalandsliðsins. Upphaflega stóð til að hún sinnti þjálfun CSM og danska landsliðsins fyrsta árið. Árangursleysi CSM í Meistaradeild kvenna á leiktíðinni mun vera ástæða þess að Vasile hverfur frá borði hjá CSM.
- Svo sérstakt sem það er þá var Vasile einnig forveri Thomsen. Vasile þjálfaði CSM frá 2019 fram til ársins 2024 þegar hann var leystur frá störfum og Thomsen tók við.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -





