Evrópumót karla í handknattleik fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð frá 15. janúar til 1. febrúar 2026. Íslenska landsliðið verður á meðal þátttökuliða og er í F-riðli með landsliðum Ítalíu, Póllands og Ungverjalands.
Hér fyrir neðan er riðlaskiptingin, leikstaðir, leikdagar og leiktímar sem eru allir miðaðir við klukkuna á Íslandi. Úrslit leikjanna verða skráð þegar þeim verður lokið og staðan auk stöðunnar í hverjum riðli.
Tvö efstu lið úr hverjum riðli halda áfram keppni í milliriðlum. Tvö neðstu liðin halda heim að lokinni riðlakeppninni. Nánari upplýsingar um framhaldið er neðst í greininni.
A-riðill (Jyske Bank Boxen, Herning)
15. janúar: Spánn – Serbía 29:27 (19:15).
-Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.
15. janúar: Þýskaland – Austurríki 30:27 (12:8).
17. janúar: Austurríki – Spánn, 25:30 (12:19).
17. janúar: Serbía – Þýskaland 30:27 (13:17).
19. janúar: Austurríki – Serbía 26:25 (12:13).
19. janúar: Þýskaland – Spánn 34:32 (17:15).
B-riðill (Jyske Bank Boxen, Herning)
16. janúar: Portúgal – Rúmenía 40:34 (23:15).
16. janúar: Danmörk – Norður Makedónía 36:24 (17:12).
18. janúar: Norður Makedónía – Portúgal 29:29 (13:15).
18. janúar: Rúmenía – Danmörk 24:39 (17:22).
20. janúar: Norður Makedónía – Rúmenía 24:23 (13:9).
20. janúar: Danmörk – Portúgal 29:31 (11:12).
C-riðill (Unity Arena, Bærum)
15. janúar: Frakkland – Tékkland 42:28 (20:14).
15. janúar: Noregur – Úkraína 39:22 (19:11).
17. janúar: Úkraína – Frakkland, 26:46 (12:24).
17. janúar: Tékkland – Noregur 25:29 (16:16).
19. janúar: Tékkland – Úkraína 38:29 (17:14).
-Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma leikinnn.
19. janúar: Frakkland – Noregur 38:34 (20:17).
D-riðill (Unity Arena, Bærum)
16. janúar: Slóvenía – Svartfjallaland 41:40 (19:18).
16. janúar: Færeyjar – Sviss 28:28 (15:13).
18. janúar: Svartfjallaland – Færeyjar 24:37 (12:19).
18. janúar: Sviss – Slóvenía 35:38 (20:14).
20. janúar: Svartfjallaland – Sviss 26:43 (16:22).
20. janúar: Slóvenía – Færeyjar 30:27 (16:15).
E-riðill (Malmö Arena, Malmö)
17. janúar: Króatía – Georgía, 32:29 (15:14).
17. janúar: Svíþjóð – Holland 36:31 (16:12).
19. janúar: Holland – Króatía 29:35 (13:15).
19. janúar: Georgía – Svíþjóð 29:38 (15:20).
21. janúar: Holland – Georgía 31:26 (18:15).
21. janúar: Svíþjóð – Króatía 33:25 (17:13).
F-riðill (Kristianstad Arena, Kristianstad)
16. janúar: Ísland – Ítalía 39:26 (21:12).
16. janúar: Ungverjaland – Pólland 29:21 (14:10).
18. janúar: Pólland – Ísland 23:31 (10:13).
18. janúar: Ítalía – Ungverjaland 26:32 (13:14).
20. janúar: Pólland – Ítalía 28:29 (13:15).
20. janúar: Ungverjaland – Ísland 23:24 (14:14).
Áframhaldið
–Tvö efstu lið A, B og C-riðla verða saman í milliriðli 1 í Jyske Bank Boxen í Herning. Leikdagar 22., 24., 26. og 28. janúar.
-Tvö efstu lið D, E, og F-riðla verða saman í milliriðli 2 í Malmö Arena í Malmö. Leikdagar 23., 25., 27. og 28. janúar. (já, 28. janúar, þetta er ekki misritun!).
-Ekki verða leikin 8-liða úrslit.
-Tvö efstu lið hvors milliriðils fara í undanúrslit í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku 30. janúar kl. 16.45 og 19.30.
-Liðin sem hafna í þriðja sæti hvors milliriðils leika um 5. sætið í Jyske Bank Boxen í Herning föstudaginn 30. janúar kl. 14.
-Leikið verður um 3. sætið í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku sunnudaginn 1. febrúar kl. 14.15.
-Leikið verður um 1. sætið í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku sunnudaginn 1. febrúar kl. 17.
-Ítrekað er að allir leiktímar eru miðaðir við klukkuna á Íslandi. Klukkan er einni stund á undan í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
EM karla 2026 – milliriðlar – leikir, úrslit, staðan, leiktímar


