Guðjón Valur Sigurðsson skoraði mörg eftirminnileg mörk fyrir íslenska landsliðið á löngum ferli sínum. Hann er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 1879 mörk í 365 landsleikjum.
Eitt af þessum mörkum kom í leik gegn Serbíu á EM 2018 í Króatíu og var harla óvenjulegt.
Guðjón Valur tók þá vítakast en skaut í þverslána. Hann lét þó ekki deigan síga, stökk inn í vítateiginn, kýldi boltann í netið af stuttu færi og jafnaði metin.
Leikurinn tapaðist að lokum og Ísland komst ekki í milliriðil en ótrúlegt mark Guðjóns Vals var rifjað upp á samfélagsmiðlum Handknattleikssambands Evrópu um síðustu helgi og má sjá hér:
Hansen markahæstur og Guðjón Valur þriðji – Ólafur einnig á lista
Karabatic leikjahæstur – Guðjón Valur er annar



