- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Rifti samningi stuttu fyrir EM – gerði það sama fyrir tveimur árum

- Auglýsing -

Vuko Borozan, hægri skytta frá Svartfjallalandi, hefur komist að samkomulagi við norðumakedónska félagið RK Vardar 1961 að rifta samningi hans tafarlaust.

Borozan verður í eldlínunni með Svartfjallalandi á Evrópumótinu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem hefst á morgun. Svartfjallaland er í D-riðli með Slóveníu, Færeyjum og Sviss, sem er leikinn í Bærum í Noregi.

Athygli vekur að Borozan gerði það nákvæmlega sama  nokkrum dögum fyrir EM 2024 fyrir tveimur árum.

Hann fékk þá samningi sínum við RK Lovcen í heimalandinu rift og líður greinilega best að vera laus allra mála þegar Evrópumót ber að garði.

EM 2026.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -