- Auglýsing -
Dagný Þorgilsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt FH sem gildir til sumarsins 2028.
Dagný, sem er nýorðin 18 ára gömul, hefur spilað alla tólf leiki FH í Grill 66 deildinni á tímabilinu og skorað í þeim þrjú mörk.
„Dagný, sem er vinstri hornamaður og fædd árið 2008, er virkilega efnilegur leikmaður sem reglulega hefur verið í landsliðshópum yngri landsliða Íslands.
Við hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna enn frekar á fjölum Kaplakrika næstu árin,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild FH.
- Auglýsing -




