- Auglýsing -
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í Valkyrjustjórninni eru á meðal þeirra 3.000 íslenskra stuðningsmanna sem nú lyfta sér upp á „fan-zonei“ við Kristianstad Arena í Kristianstad fyrir síðasta leik karlalandsliðsins í F-riðli Evrópumótsins í kvöld.
Ísland mætir Ungverjalandi klukkan 19:30 þar sem í ljós kemur hvort liðin taki sitt hvort stigið með sér í milliriðil eða þá að annað þeirra taki tvö stig en hitt ekkert.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari er eins og í fyrri leikjum staddur í fan-zoneinu fyrir síðasta leik í Kristianstad og smellti af fjölda ljósmynda, sem má sjá hér fyrir neðan:
(smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri)
- Auglýsing -






























