- Auglýsing -
Í Handboltahöllinni, vikulegum þætti á mánudagskvöldum á Handboltapassanum, var 13. umferð Olísdeildar kvenna gerð upp.
ÍBV hafði betur gegn ÍR í stórleik umferðarinnar og Valur hélt sínu striki með stórsigri gegn KA/Þór þar sem Hafdís Renötudóttir var með 55% hlutfallsmarkvörslu í marki Vals.
Haukar fóru illa með botnlið Selfoss og Fram lagði Stjörnuna eftir að Garðbæingar höfðu unnið tvo leiki í röð.
Stutta yfirferð á 13. umferð Olísdeildar kvenna má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.
- Auglýsing -


