- Auglýsing -
Nýr framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, Sólveig Jónsdóttir, kom til Malmö á föstudaginn, skömmu áður en flautað var til leiks Íslands og Króatíu. Sólveig verður með íslenska landsliðinu á EM næstu daga.
Sólveig tók við framkvæmdastjórn HSÍ í upphafi mánaðarins. Hún var áður framkvæmdastjóri Fimleikassambands Íslands í áratug.
Eins og nærri má geta er Sólveig mætt á EM í handbolta í fyrsta sinn en hún hefur margoft farið með fimleikafólki á stórmót víða um lönd.
- Auglýsing -

