- Auglýsing -
Zvonimir Srna, einn af lykilmönnum króatíska karlalandsliðsins, tekur ekki frekari þátt í Evrópumóti karla eftir að hafa meiðst í 29:25 sigri Króatíu á Slóveníu í milliriðli 2 í Malmö í gær.
Vinstri skyttan er í stóru hlutverki hjá Degi Sigurðssyni þjálfara Króatíu en varð fyrir því óláni að rífa vöðva í læri og verður því frá keppni um skeið. Er því um töluvert áfall að ræða.
Króatía mætir Ungverjalandi í lokaumferð milliriðils 2 klukkan 17 í dag og tryggir sér sigur í riðlinum með sigri.
Króatía er á toppi riðilsins með sex stig og er í góðri stöðu til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum í Herning.
- Auglýsing -

