- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Wolff tekur upp hanskann fyrir Alfreð

- Auglýsing -

Andreas Wolff, markvörður Þýskalands, skilur ekkert í gagnrýni í garð Alfreðs Gíslasonar sem ákvað að láta David Späth spila nánast allan leikinn þegar Þýskaland og Danmörk mættust í milliriðli í síðustu viku. Danir unnu þann leik og komst Späth prýðilega frá sínu.

Í leiknum á undan hafði Wolff farið hamförum og varið 22 skot í sigri á Noregi. Fyrrverandi leikmennirnir Pascal Hens og Stefan Kretzschmar gagnrýndu ákvörðun Alfreðs um að spila Späth þegar þeir voru við störf sem sérfræðingar á ZDF sjónvarpsstöðinni.

„Mér finnst það ótrúlegt virðingarleysi í garð David hvernig þessi umræða hefur verið og hvernig henni hefur verið haldið á lofti. Þetta var algert virðingarleysi og það reitir mig til mikillar reiði.

Það er stórundarlegt að menn sem hafa spilað handbolta í þetta mörg ár hafi svona lítinn skilning á fólki. Fyrir mótið sögðum við að við mynduðum markvarðateymi og að styrkur okkar liggi í jafnvægi og gæðum okkar beggja.

Svo byrjar David einn leik og allur heimurinn missir vitið. Mér finnst það algjört hneyksli,“ hefur Handball World eftir Wolff, sem er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -