- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Mjög stoltur að vera hluti af þessu liði“

- Auglýsing -

„Þetta var einhvern veginn svolítið endurtekið efni, fyrri hálfleikurinn, eins og þetta var í Malmö. Við vorum aðeins of linir,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í Herning í Danmörku í dag.

Ísland tapaði einnig með einu marki fyrir Króatíu í milliriðli fyrir tæpri viku síðan og var þá sömuleiðis að elta allan leikinn.

Fjórða sætið niðurstaðan hjá Íslandi er Dagur hirti bronsverðlaunin

„Hvað eftir annað lekur boltinn inn eftir erfiða vörn. Þeir ná einhvern veginn að skjóta úr mun verri færum en við. Hinum megin erum við að spila okkur í opin færi hvað eftir annað og klikkum.

Það eru margir litlir hlutir sem safnast saman í eina stóra hrúgu þegar maður tekur þetta saman í lokin. Mér fannst við vera með augnablik í byrjun þar sem við hefðum getað komist almennilega í gott forskot.

Af því að þeir klikkuðu í byrjun og við hefðum getað komist í þægilegt forskot og sett þá smá undir pressu, en ekki að þeir væru að leiða allan leikinn nokkuð þægilega,“ hélt Gísli áfram.

Auðvitað helvíti sárt

Þið náðuð þessum spretti í lokin eins og í fyrri leiknum.

„Sem gerist enn og aftur aðeins of seint. Svona er þetta en ég ætla að reyna að taka þennan leik út fyrir sviga og súmmera það sem við erum búnir að gera í þessum mánuði, sem mér finnst alveg stórkostlegt.

Við erum búnir að taka mjög stór skref í rétta átt sem lið. Við erum orðnir samstilltari, erum orðnir stærri og erum allir á sömu blaðsíðu hvað varðar plan. Ég er mjög stoltur að vera hluti af þessu liði.

Við erum auðvitað komnir á HM og það er stórkostlegur árangur. Þessi leikur mun auðvitað svíða í einhverja mánuði og það er bara þannig. Þetta er auðvitað helvíti sárt, við hefðum getað fengið medalíu í dag. En ég er samt á því að þetta sé fyrsta skrefið í rétta átt,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson að lokum við handbolta.is

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -