- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gidsel sló markametið á Evrópumótinu

- Auglýsing -

Mathias Gidsel sló í kvöld markamet Evrópumóts karla þegar hann skoraði sjö mörk í sjö marka sigri Danmerkur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins í Herning í kvöld.

Gidsel skoraði alls 68 mörk í níu leikjum á Evrópummótinu og bætti þar með met Norðmannsins Sander Sagosen frá EM 2020, sem var 65 mörk.


Danmörk Evrópumeistari í fyrsta sinn í 14 ár

Örvhenta skyttan fór á kostum á mótinu og var valinn verðmætasti leikmaður þess fyrir úrslitaleikinn í kvöld.

Gidsel er fyrsti leikmaður Danmerkur í sögunni sem er valinn besti leikmaður Evrópumótsins. Hann hefur átt frábær mót síðustu ár og var verðmætasti leikmaður handknattleikskeppni Ólympíuleikana 2021 og 2024 og hreppti sömu nafnbót á HM 2023 og 2025.


Gísli Þorgeir er í úrvalsliði EM 2026

Ómar markahæstur

Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í íslenska landsliðinu á mótinu með 55 mörk. Næstur var Orri Freyr Þorkelsson og 36.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -