Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, sýtti sérstaklega fjarveru tveggja sterkra varnarmanna eftir tap liðsins fyrir Danmörku, 34:27, í úrslitaleik Evrópumóts karla í Herning í Danmörku í gær. Þá undraði hann sig á notkun dómara leiksins á myndbandsdómgæslu.
Justus Fischer, mjög sterkur varnar- og línumaður, missti alfarið af leiknum vegna veikinda og Tom Kiesler, annar öflugur varnarmaður, fékk rautt spjald eftir aðeins 15 mínútna leik.
„Það sem fór mjög illa með okkur var fjarvera Fischers og sömuleiðis rauða spjaldið sem Tom Kiesler fékk snemma leiks. Það fækkaði valkostunum í miðjublokkina. Það þurfti allt að ganga upp til þess að vinna þessa Dani.
Mér fannst við vera nálægt því. En það litla sem okkur vantaði í dag sneru einmitt að þessum vandamálum sem ég nefndi,“ sagði Alfreð við þýsku sjónvarpsstöðina ZDF eftir leikinn.
Færumst nær Dönum
Honum fannst þá halla á þýska liðið þegar kom að notkun dómara leiksins, þeirra Ivan Pavicevic og Milos Raznatovic frá Svartfjallalandi, á myndbandsdómgæslu, VAR.
„Það var undarlegt að mörg vafaatriði sem sneru að brotum á Dönum voru skoðuð í skjánum en ekki brot á okkur. En við höfum færst nokkrum skrefum nær Dönunum. Strákarnir hafa fest sig í sessi í hæsta klassa,“ sagði Alfreð.
Bætti hann því við að Þýskaland myndi hiklaust stefna að gullverðlaunum á HM 2027 á heimavelli eftir tæpt ár.


