- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hjartsláttartruflanir en ekki höfuðmeiðsli hjá Hald

- Auglýsing -

Danska varnartröllið Simon Hald hefur opinberað að hjartsláttartruflanir hafi valdið því að hann þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning en ekki höfuðmeiðsli eins og danskir miðlar höfðu greint frá fyrir helgi.

Hald lenti í samstuði og fékk höfuðhögg í leiknum gegn Íslandi en vandamálið lá hins vegar ekki þar í grunninn, þó höggin hafi vísast ekki dregið úr vanlíðan hans.

„Þetta var smá gáttatif þar sem efri tvö hólf hjartans eru ekki fyllilega samstillt. Þannig var það útskýrt fyrir mér en ég er enginn sérfræðingur í þessu. Ég hef upplifað nokkuð svipað áður en ekki svona slæmt.

Ég var andstuttur og varð fljótt þreyttur þegar ég reyndi á mig. Þegar ég fór af velli og settist á bekkinn fann ég að mér leið enn verr. Ég fann að eitthvað var ekki eins og það átti að vera, að eitthvað væri að,“ sagði Hald í samtali við danska miðilinn hbold.dk.

Svolítið upp og niður

Hann var fluttur á sjúkrahús á meðan leikurinn stóð enn yfir og gekkst þar undir ýmsar skoðanir. Nokkur óvissa og bið tók þá við.

„Þetta hefur verið svolítið upp og niður. Ég fór úr því að spila skemmtilega og góða leiki yfir í að bíða og sjá hvað væri hægt að gera.

Því miður gat ég ekki tekið þátt í úrslitaleik EM gegn Þýskalandi en ég er ánægður með að geta verið hér. Að hafa getað stutt við bakið á strákunum og sjá þá standa sig svona vel,“ sagði Hald.

Vonast var til þess að hann næði að vera með í úrslitaleiknum eftir að hafa braggast yfir helgina en Hald fékk ekki leyfi til þess frá læknum þar sem hann fékk blóðþynnandi lyf.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -