- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tvær framlengja við Aftureldingu

- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga. Í gær var tilkynnt að Katrín Erla Kjartansdóttir hafi framlengt samning sinn til næstu tveggja ára og í morgun var tilkynnt að Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir hafi gert slíkt hið sama.


Katrín Erla er 21 árs leikstjórnandi og skytta sem kom til Aftureldingar frá Fylki árið 2022. Ingibjörg Gróa er 23 ára markvörður sem hélt í Mosfellsbæinn árið 2024 er hún kom frá HK.

Katrín Erla hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað tæplega 70 leiki fyrir Aftureldingu að því er kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum handknattleiksdeildar félagsins.

Ingibjörg Gróa hefur þá leikið vel í marki Aftureldingar í Grill 66 deildinni og hefur til að mynda varið tíu skot í leik að meðaltali á yfirstandandi tímabili.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -