- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ómar Ingi jafnaði við íslenska Danann

- Auglýsing -

Ómar Ingi Magnússon jafnaði met yfir fjölda skoraðra marka í bronsleik Evrópumóts karla þegar hann skoraði tólf mörk í 33:34 tapi Íslands fyrir Króatíu á EM 2026 í gær.

Íslenski Daninn Hans Óttar Lindberg Tómasson skoraði sömuleiðis tólf mörk fyrir Danmörku gegn Frakklandi í bronsleik EM 2018.

Hans Óttar Lindberg Tómasson. Ljósmynd/EPA

Danski handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen benti á þessa staðreynd á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Ómar Ingi skoraði mörkin tólf úr tólf skotum, þar af tíu úr vítaköstum, og endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins með 55 mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -