- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Nítján þjóðir þegar komnar á HM 2027 – óvíst hvar Ísland leikur

- Auglýsing -

Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi eftir tæpt ár. Þjóðirnar sem höfnuðu í sex efstu sætum nýafstaðins Evrópumóts hafa allar tryggt sér farseðilinn á HM 2027, þeirra á meðal Ísland.

Hinar fimm Evrópuþjóðirnar eru Evrópumeistarar Danmerkur, gestgjafar Þýskalands, Króatía, Portúgal og Svíþjóð. Alfreð Gíslason þjálfar sem kunnugt er Þýskaland og Dagur Sigurðsson þjálfar Króatíu.

Dregið verður í riðla heimsmeistaramótsins 10. júní á Hofbräuhaus í München. Reikna má með að glatt verði á hjalla.

Óvíst hvar Ísland leikur

Ekki liggur fyrir hvar íslenska landsliðið hefur keppni á HM á næsta ári, þ.e. í hvaða borg. Riðlakeppnin verður leikin í München, Stuttgart, Magdeburg og Kiel. Tveir riðlar verða í hverri borg. Það eina sem er víst á þessari stundu er að þýska landsliðið leikur sína leiki í riðlakeppninni í Hannover og heimsmeistarar- og Evrópumeistarar Danmerkur slá upp búðum í Kiel meðan riðlakeppnin, fyrsta stig mótsins, fer fram.

Milliriðlar í Hannover og Köln

Að lokinni riðlakeppninni tekur við milliriðlakeppni. Leikir milliriðlakeppninnar verða háðir í keppnishöllum í Hanover og Köln en barist um forsetabikarinn í Magdeburg (átta neðstu liðin).

Frá og með átta liða úrslitum, 26. janúar, fara allir leikir fram í Lanxess Arena í Köln.

Ekki aðeins undanúrslit EM – einnig er HM-farseðill í höfn hjá strákunum

Eftirtaldar þjóðir hafa tryggt sér farseðla á HM.
Evrópa: Þýskaland, Danmörk, Króatía, Ísland, Portúgal, Svíþjóð.
Afríka: Egyptaland, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Alsír.
Asía: Barein, Katar, Kúveit, Japan.
Suður- og mið Ameríka: Argentína, Brasilía, Chile, Úrúgvæ.

IHF hefur tvö boðskort

Þrettán sæti eru enn laus. Tíu lið frá Evrópu eiga enn eftir að bætast við. Eitt sæti rennur til Norður-Ameríku og Karíbahafsins.

Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, mun ákvarða tvö sæti með tilliti til góðrar frammistöðu (e. wild card).

Í maí verður einnig þriðja og síðasta umferðin í umspili um HM-sæti í Evrópu þegar 20 landslið keppa um 10. sæti. Áður en þriðja umferð fer fram þarf að ljúka annarri umferð í mars.

Dregið var í umspil HM fyrir Evrópu á laugardaginn:

Úkraína eða Slóvakía – Norður-Makedónía.
Bosnía eða Kósovó – Færeyjar.
Tékkland – Frakkland.
Sviss – Ítalía.
Finnland eða Svartfjallaland – Slóvenía.
Serbía eða Litáen – Ungverjaland.
Spánn – Georgía eða Ísrael.
Grikkland eða Belgía – Holland.
Noregur – Tyrkland eða Rúmenía.
Austurríki – Pólland eða Lettland.

Fyrri umferð umspilsins verður 13. og 14. maí og sú síðari 16. og 17. maí.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -