- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjórtán skot í tréverkið: „Ég held að þetta sé eitthvert Íslandsmet“

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum var 15. umferð Olísdeildar kvenna gerð upp. Í umfjöllun um leik botnliðs Selfoss gegn toppliði Vals voru tekin saman öll stangarskotin í leiknum, en þau voru alls 14.

„Ég held að þetta sé eitthvert Íslandsmet. Horfandi á leikinn þá sérðu liðin skjóta í stöngina aftur og aftur og aftur. Það voru fimm eða sex þegar 20 mínútur voru búnar. Þetta var rosalegt hvað þær skutu mikið í stöngina,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson, annar sérfræðinga Handboltahallarinnar.

Selfoss skoraði aðeins sex mörk í fyrri hálfleik og tapaði að lokum 20:32 en Einar Ingi sagði leikinn hafa verið í ágætis jafnvægi áður en skot Selfyssinga í tréverkið fóru að reynast heimakonum dýrkeypt.

Samantekt á skotunum 14 og umræðu um þau má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -