- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Pétur Árni sleit krossband

- Auglýsing -

Pétur Árni Hauksson, leikmaður Stjörnunnar, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í æfingaleik með liðinu gegn FH í janúar. Pétur Árni leikur því ekki handbolta næsta tæpa árið eða svo.

Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, greindi frá ótíðindunum í samtali við Handkastið.


Pétur Árni er 27 ára hægri skytta og sterkur varnarmaður sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Stjörnunni undanfarin ár. Um mikið áfall er því að ræða fyrir liðið.

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Stjörnunnar að undanförnu. Aron Valur Gunnlaugsson gekk nýverið til liðs við félagið að láni frá Aftureldingu og samningi Ungverjans Réa Barnabás var rift stuttu fyrir jól.

Þá gekk Ólafur Brim Stefánsson til liðs Junior Fasano á Ítalíu skömmu fyrir jól.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -