Zlatko Dalic, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu í knattspyrnu, furðar sig á því að landar sínir séu í stórum stíl sammála gagnrýni Dags Sigurðssonar, þjálfara karlaliðs Króatíu í handknattleik, í garð skipulags Handknattleikssambands Evrópu á leikjadagskrá á Evrópumótinu. Dalic hafi sjálfur gagnrýnt leikjaálag knattspyrnumanna fyrir fjórum árum við litlar undirtektir.
Dagur jós úr skálum reiði sinnar vegna leikjaálags og slæms aðbúnaðar leikmanna sinna á blaðamannafundi áður en Króatía vann Ísland í bronsleik EM á sunnudag.
Björgvin Páll: „Allt þetta hjá EHF er hneyksli og það vita allir“
Fékk engan stuðning en nú styðja allir við bakið á honum
„Ég og Sigurðsson gerðum það sama. Ég gerði það fyrir fjórum árum og fékk þá engan stuðning. Nú þegar útlendingur gerir þetta styðja allir við bakið á honum. Það sem Sigurðsson gerði var góðs viti, ég hrósa honum fyrir hugrekki sitt.
Ég gæti hafa gert nokkuð enn stærra með því að mæta ekki þrjú ár í röð á verðlaunaafhendingu FIFA fyrir besta leikmann ársins. Ég var sá eini í heiminum sem gerði það.
Ég fékk engan stuðning frá fjölmiðlum okkar og fólk véfengdi hvers vegna ég gerði þetta. Það sagði að ég væri einungis að valda skaða. En þegar útlendingur gerir eitthvað svipað fagna allir og segja: „Bravó, svona á þetta að vera,““ sagði Dalic í samtali við króatíska miðilinn Vecernji List.



