Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður Vals, segir framtíð sína ekki komna á hreint að svo stöddu. Samningur Þorvalds Arnar við Val rennur út að yfirstandandi tímabili loknu og er hann sömuleiðis með samningstilboð frá pólska félaginu GE Wybrzeże Gdansk í höndunum.
„Nei, þetta er allt ennþá í smá vinnslu. Ég get eiginlega ekkert tjáð mig um þetta núna. Þetta er óljóst,“ segir Þorvaldur Örn í stuttu samtali við handbolta.is.
Þorvaldur með samningstilboð frá Póllandi
Línumaðurinn skoðaði aðstæður og æfði með GE Wybrzeże Gdansk fyrir tæpum mánuði síðan, sem endaði með því að hann fékk samningstilboð.
Þorvaldur Örn sagði í samtali við handbolta.is í janúar að hann þyrfti einnig að ræða við Val og hefði ekki samþykkt nein tilboð. Er staða hans því óbreytt að sinni.
Auk þess að leika með Val var Þorvaldur Örn leikmaður U21-árs landsliðs Íslands á HM síðasta sumar.



