„Á æfingu á mánudaginn hoppaði ég upp í loftið, lenti á stoðfæti á öðrum leikmanni og sneri mig þá nokkuð illa á hægri ökklanum,“ segir Dagur Gautason, vinstri hornamaður KA, í samtali við handbolta.is, spurður út í fjarveru sína í leik liðsins gegn ÍR í Olísdeildinni í gær.
Dagur gekk til liðs við uppeldisfélagið KA í síðasta mánuði eftir hálfs árs dvöl hjá ØIF Arendal í Noregi. Þar á undan hafði hann leikið með stórliði Montpellier Handball í efstu deild Frakklands, sem hafði fengið Dag til sín frá Arendal.
Ágúst Elí hrósaði sigri í fyrsta leik sínum með KA
Sunnudagurinn inni í myndinni
Dagur býst ekki við því að vera lengi frá vegna ökklameiðslanna.
„Ég hitti sjúkraþjálfara daginn eftir og hann sagði mér að það væri alveg út úr myndinni að spila í gær en að það þyrfti að koma í ljós hvernig batinn verður næstu daga upp á það hvernig framhaldið verður.
Leikurinn á sunnudaginn er alveg inni í myndinni en það þarf að koma í ljós núna næstu þrjá daga hversu vel það gengur að ná bólgunni úr ökklanum. Hann er mjög þrútinn. Þetta verður metið frá degi til dags.

Þetta voru ekkert alvarleg meiðsli en tíminn var of naumur til þess að ná að vera klár í slaginn fyrir gærdaginn. Ég stefni á að ná sunnudeginum en það verður að koma í ljós.“
KA fær Fram í heimsókn í KA heimilið í 17. umferð Olísdeildarinnar á sunnudag.
Það besta í stöðunni
Dagur samdi að nýju við Arendal síðasta sumar og því var það nokkuð óvænt þegar tilkynnt var að hann væri kominn heim til Akureyrar í janúar.
„Það var í rauninni vegna þess að aðstæðurnar sem ég var í voru ekkert sérstakar. Eins og sést á gengi liðsins er búið að vera svolítið vont ástand þarna í vetur. Liðið er búið að falla nokkuð hratt niður samanborið við aðstæðurnar og gengi liðsins þegar ég fór þarna fyrst og var í tvö tímabil.
Þá voru aðstæðurnar og liðið ekkert sambærilegt því sem var núna. Eftir að hafa tekið spjall við þjálfarann og umboðsmennina mína þá var þetta það besta í stöðunni, að losa sig úr þessu umhverfi og koma heim,“ útskýrir Dagur.
Arendal var á meðal toppliða norsku úrvalsdeildarinnar í fyrri dvöl hans hjá félaginu en á nú í harðri fallbaráttu.
Frábær upplifun heilt yfir
Þrátt fyrir erfitt undanfarið hálft ár í Noregi er Dagur heilt yfir hæstánægður með upplifun sína af atvinnumennsku hjá Arendal og stórliði Montpellier.
„Á heildina litið var þetta frábært og mjög gott ævintýri, að ég tali nú ekki um Frakkland sem var frábær upplifun. Aðstæðurnar voru bara þannig núna að þetta var ekki að ganga upp. Ég reyndi eins og ég gat að láta þetta ganga upp en það gekk ekki.
Þetta gekk ekki upp og rétta skrefið var að losa sig úr því. En heilt yfir var frábært að hafa fengið að upplifa það að spila með báðum þessum klúbbum,“ segir Dagur Gautason að lokum í samtali við handbolta.is.


