- Auglýsing -
Handboltahöllin á Handboltapassanum gerði 15. umferð Olísdeildar kvenna upp á mánudagskvöld. Öll umferðin fór fram síðastliðin fimmtudag og var stórleikur umferðarinnar leikur Hauka og ÍR í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.
Haukar unnu leikinn og sáu þannig til þess að ÍR hefur tapað fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum eftir að hafa byrjað tímabilið frábærlega.
Gífurleg spenna var þá í Vestmannaeyjum þegar ÍBV vann Fram með eins marks mun. Sigurmark ÍBV var nánast flautumark, kom örfáum sekúndum fyrir leikslok.
Stutt uppgjör á 15. umferð Olísdeildar kvenna má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.
- Auglýsing -


