- Auglýsing -
- Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark í níu marka sigri Elverum á Halden, 35:26, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Elverum er efst í deildinni með 31 stig eftir 17 leiki, tveimur stigum á undan Kolstad.
- Ísak Steinsson varði sex skot, 21%, þegar lið hans Drammen tapaði fyrir bikarmeisturum Runar, 34:28, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Drammen er í 5. sæti deildarinnar með 21 stig að loknum 17 leikjum.
- Ryger Stavanger sem Elías Már Halldórsson þjálfar tapaði fyrir Charlottenlund, 34:23, í næstefstu deild norska handknattleiksins í karlaflokki í gær. Ryger Stavanger er næst neðst í deildinni með 8 stig eftir 17 leiki.
- Viktor Petersen Norberg skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar þegar lið hans, HC Elbflorenz 2006, tapaði fyrir Bietigheim í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gær, 31:27. Bietigheim hafði sætaskipti við Elbflorenz og situr nú í efsta sæti en Elbflorenz í öðru sæti.
- Auglýsing -


