Fimm leikir í 17. umferð Grill 66 deildar karla fara fram í kvöld þar sem tvö efstu liðin munu freista þess að bæta enn við forskot sitt.
Grótta, sem er í öðru sæti með 28 stig, fær Val 2 í heimsókn í Hertz höllina á Seltjarnarnesi. Valur 2 er í þriðja sæti með 22 stig.
Víkingur Reykjavík er á toppnum, einnig með 28 stig, og heimsækir Fram 2 í Lambhagahöllina í Úlfarsárdalnum. Fram 2 er í níunda sæti með 12 stig.
Hart verður barist á öðrum vígstöðvum og má þar nefna að ÍH mætir Haukum 2 í Kaplakrika í Hafnarfjarðarslag.
Dagskrá kvöldsins
Grill 66-deild karla:
Vestmannaeyjar: HBH – Fjölnir, kl. 18.30
Ísafjörður: Hörður – Selfoss 2, kl. 19.
Hertzhöllin: Grótta – Valur 2, kl. 19.
Kaplakriki: ÍH – Haukar 2, kl. 19.30.
Lambhagahöllin: Fram 2 – Víkingur, kl. 20.
Staðan og næstu leikir í Grill 66 deildum.



