Enn bætist á meiðslalista karlaliðs Stjörnunnar þar sem hægri hornamaðurinn Gauti Gunnarsson missir að minnsta kosti af næsta leik liðsins í Olísdeildinni eftir að hafa snúið sig á ökkla í 17. umferð deildarinnar á sunnudaginn.
Handkastið greinir frá því að Gauti hafi meiðst í upphafi síðari hálfleiks í eins marks tapi fyrir Selfossi í gær en að sem betur fer væri komið á hreint að hann hafi ekki brotnað, þó ekki sé vitað nákvæmlega hve lengi Gauti verður frá.
Dagur skoraði sigurmark á síðustu sekúndu – ÍBV, FH og KA vinna – Selfoss sótti stig í Garðabæ
Pétur Árni Hauksson sleit krossband í síðasta mánuði og verður lengi frá auk þess sem Ísak Logi Einarsson ristarbrotnaði nýverið og verður fjarri góðu gamni um nokkurra vikna skeið.
Fyrir voru Tandri Már Konráðsson, Sveinn Aron Sveinsson og Egill Magnússon á meiðslistanum hjá Stjörnunni. Betri fréttir eru af Jóni Ásgeiri Eyjólfssoni, sem sneri aftur í lið Stjörnunnar í fyrrakvöld eftir að hafa glímt við meiðsli undanfarnar vikur.



